Umsækjandi um byggingarlóð þarf að vera lögráða og hafa íslenska kennitölu. Greitt er fyrir lóðir samkvæmt gjaldskrá gatnagerðargjalda, byggingarleyfisgjalda og stofngjalda holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð. Umsóknareyðublöð má nálgast á vef Fjarðabyggðar, á bæjarskrifstofu eða þjónustugáttum bókasafna. Nánari upplýsingar um byggingarlóðir og forsendur lóðaúthlutana veitir skipulagsfulltrúi Fjarðabyggðar á byggingarfulltrui@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000.