Samstarfssamningur um uppbyggingu á búsetukjarna og skammtímavistun
15.03.2024Á dögunum var undirritaður samstarfssamningur á milli Fjarðabyggðar og R101 ehf. til uppbyggingar á búsetukjarna auk skammtímavistunnar á Reyðarfirði.
Fjarðabyggð áformar að koma á fót búsetukjarna á Reyðarfirði sem mun hafa sex einstaklingsíbúðir og skammtímavistun fyrir fötluð börn. Einnig verður gert ráð fyrir starfsmannarými, setustofu fyrir íbúa og gesti ásamt tækjageymslu.