mobile navigation trigger mobile search trigger

Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar

Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar 2024

þróttamanneskja Fjarðabyggðar var útnefnd í íþróttahúsinu Reyðarfirði laugardaginn 6. janúar og var það Kristín Embla Guðjónsdóttir, glímukona í Val sem hlaut þann titil. Í umsögn íþrótta- og tómstundaráðnefndar um Kristínu segir:

Kristín Embla er gull af manni og með samviskusemi, keppnisskapi og dugnaði nær hún árangri. Með þessum eiginleikum náði hún að landa Freymeninu 2023 í glímu í þriðja sinn á árinu. Utan vallar er hún góð fyrirmynd og hvatning til ungra kvenna sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. Einnig sem landsliðskona er hún einstaklega góður fulltrúi fyrir land og þjóð.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þá sem valdir hafa verið íþróttamanneskju Fjarðabyggðar frá árinu 2000

2023 - Þórarinn Ómarsson, blakari í Þrótti Fjarðabyggð

2020 - Tinna Rut Þórarinsdóttir, blakkona Þrótti Fjarðabyggð

2019 - Daði Þór Jóhannsson, frjálsar íþróttir Leikni Fáskrúðsfirði

2018 - Ana Maria Vidal Bouza, blakkona Þrótti Fjarðabyggð

2017 - María Rún Karlsdóttir, blakkona Þrótti Fjarðabyggð

2016 – Ásmundur Hálfdán Ásmundsson, glímumaður Val Reyðarfirði

2015 – María Rún Karlsdóttir, blakkona Þrótti Fjarðabyggð

2014 – Eva Dögg Jóhannsdóttir, glímukona Val Reyðarfirði

2013 – Aron Gauti Magnússon, knattspyrnumaður Austra Eskifirði

2012 – Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, blakkona Þrótti Fjarðabyggð

2011 – Helena Kristín Gunnarsdóttir, blakkona Þrótti Fjarðabyggð

2010 – Sveinn Fannar Sæmundsson, knattspyrnumaður Þrótti Fjarðabyggð

2009 – Jóhann Ragnar Benediktsson, knattspyrnumaður Austra Eskifirði

2008 – Laufey Frímannsdóttir, glímukona Val Reyðarfirði

2007 – Eggert Gunnþór Jónsson, knattspyrnumaður Austra Eskifirði

2006 – Eggert Gunnþór Jónsson, knattspyrnumaður Austra Eskifirði

2005 – Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, blakkona Þrótti Fjarðabyggð

2004 – Ólafur Gunnarsson, glímumaður Val Reyðarfirði

2003 – Þorbergur Ingi Jónsson, langhlaupari Þrótti Fjarðabyggð

2002 – Karl Friðrik Jörgensen, skíða- og knattspyrnumaður  Þrótti Fjarðabyggð

2001 – Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, blakkona Þrótti Fjarðabyggð

2000 – Hulda Elma Eysteinsdóttir, blakkona Þrótti Fjarðabyggð

og Guðni Þór Magnússon, frjálsar íþróttir Austra Eskifirði