mobile navigation trigger mobile search trigger

AÐ FLYTJA TIL FJARÐABYGGÐAR

Hér má finna allar helstu upplýsingar fyrir þá sem eru að skoða að flytja hingað til okkar í Fjarðabyggð. Vonandi nýtast þær, annars er líka alltaf velkomið að senda okkur póst á fjardabyggd@fjardabyggd.is 

FLUTNINGSTILKYNNING

Tilkynna skal um flutninga til Þjóðskrár Íslands, íbúaskrár. Íbúum er bent á þann möguleika að fylla inn rafrænar tilkynningar en það er hægt að gera á vefjunum www.skra.is og www.island.is

Atvinna

Hægt er að nálgast upplýsingar um laus störf hjá Fjarðabyggð á heimasíðu Fjarðabyggðar með því að smella á eftirfarandi hlekk: laus störf

Vinnumálastofnunausturland.is og  Alfred.is

Hiti og rafmagn

Íbúar geta valið sér raforkusala og eru hvattir til að bera saman verð á milli raforkusala, það er meðal annars hægt að gera inná aurbjorg.is

Hitaveita er á Eskifirði en annars staðar í Fjarðabyggð eru hús hituð með rafmagni. Skrifstofa Hitaveitu Fjarðabyggðar er á Strandgötu 16, 735 Fjarðabyggð og síminn er 470 9000. 

Sorpflokkun

Í Fjarðabyggð er notast við þriggja tunnu sorptunnukerfi í Fjarðabyggð. Gráa-, Græna- og Brúna tunnan eru allar losaðar á þriggja vikna fresti. 

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að smella á eftirfarandi hlekk: sorphirða

Sundlaugar

Í Fjarðabyggð eru reknar fimm sundlaugar, á Norðfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og í Breiðdal.

Hægt er að skoða opnunartíma þeirra hér

Íþróttamiðstöðvar

Í Fjarðabyggð eru rekin sex íþróttahús og líkamsrækt á öllum stöðum. Hægt er ða nálgast frekari upplýsingar um íþróttaðastöðu hér

Skíðamiðstöðin Oddsskarð eins og skíðasvæðið milli Eskifjarðar og Norðfjarðar er oft kallað, er eitt skemmtilegasta skíðasvæði landsins.  Í fjallinu er toglyfta í 513 metra hæð og þegar upp á topp er komið, í 840 metra hæð yfir sjávarmáli, blasir við ægifagurt útsýni yfir Reyðarfjörð. Á skíðasvæðinu eru tvær toglyftur og barnalyfta, góð aðstaða fyrir brettafólk og skíðaskáli með veitingaaðstöðu. Frekari upplýsingar um skíðamiðstöðina er hægt að nálgast hér

Grunnskólar

Í Fjarðabyggð eru reknir fimm grunnskólar fyrir börn á grunnskólaaldrinum sex til fimmtán ára. Skólarnir eru Nesskóli í Neskaupstað, Grunnskóli Eskifjarðar, Grunnskóli Reyðarfjarðar, Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli. 

Sótt er um skólavist hjá hlutaðeigandi skóla. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að smella á eftirfarandi hlekk: grunnskólar

Leikskólar

Í Fjarðabyggð eru starfræktir sex leikskólar og sótt er um leikskóladvöl á heimasíðu hvers leikskóla. 

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að smella á eftirfarandi hlekk: leikskólar

Tónlistaskólar

Í Fjarðabyggð eru þrír tónlistarskólar, Tónskóli Neskaupstaðar, Tónlistarskóli Eskifjarðar- og Reyðarfjarðar og Tónlistarskóli Fáskrúðs- og Stöðvarfjarðar sem einnig þjónar í Breiðdal.  

Frekari upplýsingar um tónlistakóla og umsóknarferli má nálgast með því að smella á eftirfarandi hlekk tónlistaskólar

Verslun og þjónusta

Í Fjarðabyggð er að finna alla þá þjónustu sem þarf að vera til staðar í hverju samfélagi. Matvöruverslanir, bakarí, apótek, banki, hárgreiðslu- og snyrtistofur, tannlæknir, efnalaug, umboðaaðili tryggingafélaga, skiltagerð, eldsneytissala, bifreiða- og vélaverkstæði og veitinga- og gististaðir. 

Krónan er með verslun í Molanum Reyðarfirði ásamt Lyfju, Fjarðabásum og Veiðiflugunni. Lyfja rekur einnig verslanir á Norðfirði og Eskifirði. Kjörbúðin rekur svo verslanir á Norðfirði, Eskifirði og Fáskrúðsfirði. Á Breiðdalsvík er gamla búðin Kaupfjelagið rekið.

Samgöngur

Strætó heldur uppi áætlunarferðum á milli kjarna í Fjarðabyggð. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um ferðir strætisvagna Fjarðabyggðar með því að smella á eftirfarandi hlekk: almenningssamgöngur

Mannlíf

Í Fjarðabyggð er öflugt menningar- og listalíf. Fjölmörg gallerý og vinnustofur ásamt söfnum.
Hægt er að allar upplýsingar með því að smella á eftirfarandi hlekk: menning

Heilsugæsla

Í Fjarðabyggð er rekin öflug heilbrigðisþjónusta á vegum Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

Tímabókanir hjá heimilislæknum fara fram í gegnum aðalnúmer hverrar starfsstöðvar

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að smella á eftirfarandi hlekk: Heilbrigðisstofnun Austurlands

Húsnæði

Viltu byggja?  Byggingafulltrúi veitir allar upplýsingar um lóðir og framkvæmdir. 

Skoða lausar lóðir: www.map.is/fjardabyggd

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að smella á eftirfarandi hlekk: Byggingalóðir

Leigufélögin Bríet, Brák og Heimstaden eru með íbúðir til leigu í Fjarðabyggð

Fasteignasölur: 

Lindin Fasteignir sími: 893 1319 

Byr fasteignasala sími: 483 5800