mobile navigation trigger mobile search trigger

FJARÐABYGGÐ Í TÖLUM

Um 5.200 íbúar voru búsettir í Fjarðabyggð í apríl 2022. Sveitarfélagið er 1.615 ferkílómetrar að flatarmáli. Það nær frá Dalatanga (Mjóifjörður) í norðri að Streiti (Breiðdal) í suðri. Það er fjölmennasta sveitarfélagið á Austurlandi og það 10. í röðinni af 75 sveitarfélögum landsins hvað íbúafjölda snertir.

Sjö bæjarkjarnar eru í Fjarðabyggð - Mjóifjörður, Neskaupstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður og Breiðdalsvík. Hver kjarni býr yfir eigin sögu og sérstöðu. Allir eiga þeir þó sameiginlegt nábýli við náttúru landsins, fjölbreytta möguleika til gefandi útivistar, afþreyingu og fjölskylduvænt umhverfi.

Íbúafjöldi (apríl 2022)

Mjóifjörður 18
Norðfjörður 1.530
Eskifjörður 1.124
Reyðarfjörður 1.380
Fáskrúðsfjörður 776
Stöðvarfjörður 181
Breiðdalur 192

Vegalengdir frá Reyðarfirði

  • Stöðvarfjörður 44 km.
  • Fáskrúðsfjörður 21 km.
  • Eskifjörður 15 km.
  • Norðfjörður 34 km.
  • Mjóifjörður (Brekka) 57 km.
  • Breiðdalsvík 63 km.
  • Alþjóðaflugvöllurinn Egilsstöðum 35 km.

Vegalengdir til Fjarðabyggðar

  • Flug frá Reykjavík - ein klukkustund (Flogið til Egilsstaða)
  • Reykjavík - Reyðarfjörður  677 km.
  • Egilsstaðir - Reyðarfjörður 34 km.
  • Akureyri - Reyðarfjöður 295 km.
  • Seyðisfjörður - Reyðarfjörður 59 km.
  • Höfn - Reyðarfjörður 228 km.